26. nóvember 2007

að hafa fortíðina að baki sér

Ég hef verið að lesa gamlar bloggfærslur síðustu daga og mikið hef ég hlegið og grátið til skiptis. nóvember síðustu ár:

25. nóvember 2004 Góðar fréttir og slæmar
góðu fréttirnar eru þær að ég er að lesa með fyndnari bókum sem ég hef á ævinni lesið; "eats, shoots and leaves - the zero tolerance to punctuation".. ef þið hafið húmor fyrir lélegum staðsetningum á kommum og punktum og þess háttar merkjum þá er þessi flott.. slæmu fréttirnar eru þær að það er fyrirlestur eftir um klukkutíma og ég er að fá stress kast! vantar að róa mig aðeins, sérstaklega þar sem við erum búnar að öllu.. gef mér gott klapp á bakið *klapp klapp* verð að þjóta, þarf að fá mér vatn að drekka og lesa yfir glærurnar aðeins :)

28. nóvember 2005 'Við vorum orðin svo stressuð að koma hingað'
þetta sagði Jónsi í Sigur Rós rétt áður en tónleikunum lauk í höllinni í gær.. öö þau hefðu alveg getað sparað sér þetta stress því þetta var ÓTRÚLEGT!!!!! Ég er samt ekkert smá fegin að ég var í stúku en ekki í maurahafinu á gólfinu eins og allir 'litlu krakkarnir'. Sviðsframkoman, öll umgjörðin í kringum tónleikana, ljósin, myndbrotin sem er varpað á tjaldið bakvið þá - allt saman small eins og flís við rass og maður fór í gegnum allan tilfinningaskalann bara. Ég held ég hafi verið með gæsahúð meirihlutann af þeim 2 og hálfum tíma sem þeir voru á sviðinu og geri aðrir gott betur!öll, öll, öll uppáhaldslögin mín fengu að hljóma um salinn -er hægt að biðja um eitthvað betra?

19. nóvember 2006 "Hver heldurðu að þú sért Bastian?! Bæjarfógetinn?"
Ég fór í leikhús á föstudaginn á Herra Kolbert eins og ég minntist hér á og ég verð að segja að það kom mér skemmtilega á óvart. Ég hafði séð brot úr því á N4 rétt fyrir frumsýningu og var með vissar efasemdir en hristi þær af mér eftir 10 mínútur af leikritinu. Þessir leikarar eru ótrúlegir, leikritið sjálft fyndið og örlítið átakanlegt um leið og það stuðar mann í endann. Mæli með þessari sýningu en það er víst bara sýnt fram að jólum. (já og fyrirsögn bloggsins er einmitt úr leikritinu)
Í gær fór ég svo í bíó á Bond og annan eins Bond hef ég ekki séð. Hann er svo mikill karlmaður að mann svimar bara. Ó já! Myndatakan er frábær, mér fannst sagan líka alveg ágæt (þó það truflaði mig pínu að þetta átti að vera forsaga sem gerðist samt í nútímanum.. hmm)og Bond-pían skemmtileg. Mæli með henni, en athugið að hún er 2 1/2 klst.


Fyndið að glugga svona í hugsanir manns árum seinna... svona er lífið skrýtið

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það er nefnilega það skemmtilega við þetta blogg, það er einskonar dagbók og mjög gaman að lesa gamlar færslur og í raun nauðsynlegt að glata þeim ekki.

Lára sagði...

nákvæmlega ;)
Spurning um að prenta þetta út á endanum?

Nafnlaus sagði...

já það er alltaf gaman að rifja upp svona... nóvember 2005 til dæmis vorum við að hlusta á Galvinize í Hollywood Musicals!! :-) ah memories!!