1. júní 2006

Til hamingju, Eva!

Eva litla systir á afmæli í dag, 22 ára kjeeellling! Innilega til hamingju krúz ;)

Ég tók stórt skref í þá átt að gerast sófakartafla í gær þegar ég smellti mér á einn myndlykil frá digital ísland. Verður maður ekki að vera með í umræðunni í vinnunni?
Þessi myndlykill tók reyndar dýrmætan tíma frá mér og líka hluta af geðheilsunni, því eki einungis var ég að reyna að mixa eitthvað saman með skart-tengjum sem var ekki alveg að ganga, heldur var leiðbeiningarbæklingurinn líka svo illa þýddur og illa uppsettur að ég var að verða vitlaus.
Er að spá í að sýna þýðöndunum mínum bæklinginn og sjá hvað þær segja ;)
Sumarkvefið mitt er í fullum blóma, snýti grænu og gulu þannig að ekki er þetta ofnæmi, þó margir hafi bent mér á að kannski sé ég bara með svoleiðis.

Ég ætla norður um helgina að hitta gamla vini og lítið barn sem heitir Óskar Smári og er í sinni fyrstu Íslandsheimsókn og eyða svo restinni með familíunni.
Hlakka til, hlakka til, hlakka til!

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

góða ferð norður beibí - nú fer esjan vonandi að verða tilbúin fyrir okkur :)

vona að kvefið fari að lagast, sjáumst fljótt *knús*

og já p.s. til hamingju með afmælið eva og til hamingju með systur þína lára :D

Lára sagði...

hehe takk María mín! Já, nú verðum við að taka Esjuna!

spurning líka um kvennahlaupið 10. júní? Ég ætla að labba/skokka 3 km ef þú hefur áhuga líka :)

knús

Lára sagði...

hehe, spurning, spurning..
þú ert annars svo mikill göngubjörn núna, viltu þá koma með? ;)

Lára sagði...

neiiibbs, ekki heyrt af því.. prófaðu að gúgla (ho ho ho) og sjáðu hvað birtist

Nafnlaus sagði...

er það á laugardag eftir viku? já ég væri alveg til í að koma með þér í það - hljómar bara flott. vona ég haldi í við þig, búin að missa þolið. spurning hvort ingibjörg fari líka? hún stingur okkur örugglega af :D

Nafnlaus sagði...

takk fyrir mig lara og steinunn.. gaman ad heyra i ykkur i gaer :D
tid tyrftud nu ad skreppa i helgarferd held eg svei mer ta :D var ekki ad koma tilbod med express??

knus i brus..fer kannski og kiki i budir um helgina og kaupi mer eitthvad fallegt :)sem gjof fra ykkur